REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 20


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 20. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 200.000 eigin hluti að kaupverði 16.250.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
16/5/2310:42200.00081,2516.250.0008.796.248
Samtals 200.000 16.250.0008.796.248


Reitir hafa nú keypt samtals 2.796.248 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 46,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 229.538.584 kr. sem samsvarar 41,7% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 8.796.248 eigin hluti, eða um 1,18% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.