Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 21. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.940.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
22.05.2023 15:13 1.000.000 4,68 4.680.000
23.05.2023 10:26 500.000 4,67 2.335.000
24.05.2023 09:34 1.000.000 4,63 4.630.000
25.05.2023 14:22 500.000 4,59 2.295.000
Samtals   3.000.000   13.940.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 1.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 4.000.000 hluti, eða um 0,1% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 18.610.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is