REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 21


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 21. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 946.248 eigin hluti að kaupverði 76.169.212 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
23/5/2309:49100.00082,008.200.0008.896.248
23/5/2310:48200.00082,0016.400.0009.096.248
23/5/2314:5596.24881,507.844.2129.192.496
24/5/2311:37150.00080,0012.000.0009.342.496
25/5/2309:46150.00080,0012.000.0009.492.496
25/5/2311:3970.00079,505.565.0009.562.496
25/5/2311:4330.00079,502.385.0009.592.496
26/5/2312:40100.00078,507.850.0009.692.496
26/5/2312:4950.00078,503.925.0009.742.496
Samtals 946.248 76.169.2129.742.496


Reitir hafa nú keypt samtals 3.742.496 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 62,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 305.707.796 kr. sem samsvarar 55,6% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 9.742.496 eigin hluti, eða um 1,31% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.