Sýn hf.: Þórhallur Gunnarsson hefur óskað eftir starfslokum hjá Sýn


Þórhallur Gunnarsson hefur óskað eftir starfslokum hjá Sýn. 

Þórhallur hefur starfað síðustu fjögur ár sem framkvæmdastjóri Fjölmiðla Sýnar og hefur á þeim tíma umbreytt fjölmiðlastarfsemi félagsins til hins betra og vill félagið þakka honum kærlega fyrir hans framlag. 

Upplýsingar um framtíðar skipulag fjölmiðlana verður tilkynnt þegar það liggur fyrir en Þórhallur verður í ráðgjafahlutverki fyrir félagið næstu mánuði.