Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 23 keyptiu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 475.147 eigin hluti að kaupverði 16.237.084 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
5.6.202314:15:3472.64434,002.469.896
5.6.202315:14:0015.00034,00510.000
7.6.202312:44:0911.93534,20408.177
7.6.202312:51:511.64834,2056.362
7.6.202315:22:51233.04234,207.970.036
8.6.202315:29:39117.95134,204.033.924
9.6.202311:29:1522.92734,40788.689
Samtals 475.147 16.237.084
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 17.05.2023.

Sjóvá átti 8.825.603 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 9.300.750 eigin hluti eða sem nemur 0,79% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 2.116.842 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,18% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 72.534.202 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.331.378 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is