REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 23


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 23. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 900.000 eigin hluti að kaupverði 69.800.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
5/6/2311:1490.00077,006.930.00010.482.496
5/6/2311:1510.00077,00770.00010.492.496
6/6/2310:14200.00078,0015.600.00010.692.496
6/6/2312:06150.00078,0011.700.00010.842.496
7/6/2311:34100.00077,507.750.00010.942.496
7/6/2312:19100.00077,007.700.00011.042.496
7/6/2314:29150.00077,0011.550.00011.192.496
8/6/2309:44100.00078,007.800.00011.292.496
Samtals 900.000 69.800.00011.292.496


Reitir hafa nú keypt samtals 5.292.496 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 87,6% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 426.207.796 kr. sem samsvarar 77,5% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 11.292.496 eigin hluti, eða um 1,51% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.