REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 24 - Lok endurkaupaáætlunar


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. 

Í 24. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 745.737 eigin hluti að kaupverði 59.572.227 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
12/6/2310:05150.00080,2512.037.50011.442.496
12/6/2310:33150.00080,5012.075.00011.592.496
12/6/2313:4096.24880,007.699.84011.688.744
13/6/2309:50100.00080,258.025.00011.788.744
13/6/2310:19100.00080,008.000.00011.888.744
13/6/2310:38149.48978,5011.734.88712.038.233
Samtals 745.737 59.572.22712.038.233


Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 26. apríl 2023, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 6.038.233 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 550 milljónum króna.

Félagið hefur nú keypt samtals 6.038.233 eigin hluti fyrir samtals 485.780.023 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð. Reitir eiga nú samtals 12.038.233 eigin hluti, eða um 1,61% af heildarhlutafé félagsins.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is