REITIR: Stækkun á skuldabréfaflokknum REITIR150531


Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í skuldabréfaflokknum REITIR150531. 

REITIR150531 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2031 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 5.650 m.kr. í flokknum.

Seld voru skuldabréf í REITIR150531 að nafnverði 3.750 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,66%.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna fimmtudaginn 22. júní næstkomandi og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland samhliða.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, netfang: vbm@islandsbanki.is.