Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í viku 24 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 770.000 eigin hluti að kaupverði 26.488.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
13.6.202310:18:57385.00034,5013.282.500
16.6.202309:30:01218.65934,307.500.004
16.6.202310:35:08166.34134,305.705.496
Samtals 770.000 26.488.000
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 17.05.2023.

Sjóvá átti 9.300.750 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 10.070.750 eigin hluti eða sem nemur 0,85% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 2.886.842 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,24% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 99.022.202 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.331.378 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is