Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 24. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.515.000 kr. í samræmi við eftirfarandi: 


DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
12.06.202309:331.000.0004,5154.515.000
13.06.202309:431.000.0004,54.500.000
14.06.202309:431.000.0004,54.500.000
Samtals 3.000.000 13.515.000


Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024. 

Nova Klúbburinn átti 10.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 13.000.000 hluti, eða um 0,34% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 59.295.000 kr. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir. 

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is