Orkuveita Reykjavíkur – Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa


Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 20. júní 2023. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 17.747 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.910 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,30% - 3,39%. Tilboðum að fjárhæð 1.200 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,30%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 25.201 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.810 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,01% - 3,10%. Tilboðum að fjárhæð 1.000 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,01%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.


Nánari upplýsingar:

Benedikt K. Magnússon, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516 6100, netfang: Benediktk@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is