Lánasjóður sveitarfélaga - Endurkaup LSS150224


Lánasjóður sveitarfélaga keypti í dag eigin skuldabréf í flokknum LSS150224 að fjárhæð 2.650 milljónir króna að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 2,75%. Kaupverð bréfanna er 424 milljónir króna.

Endurkaupin eru hluti af virkri stýringu á efnahagsreikningi sjóðsins og er jafnframt ætlað að viðhalda seljanleika bréfanna.


Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949