Framkvæmdastjóri Ljósleiðarans lætur af störfum


Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans hefur óskað eftir því við stjórn Ljósleiðarans að láta af störfum. Stjórn félagsins og Erling Freyr hafa gert með sér samkomulag um starfslok og mun hann láta af störfum frá og með 30. júní n.k. en vera stjórn félagsins innan handar næstu mánuði.
Dagný Jóhannesdóttir sem verið hefur staðgengill Erlings Freys mun taka við starfi framkvæmdastjóra þar til nýr tekur við en starfið verður auglýst á næstu dögum. 

Tengiliður:

Breki Logason
stjórnandi samskipta
breki@ljosleidarinn.is