REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 26


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 26. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.170.000 eigin hluti að kaupverði 88.305.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
26/6/2310:09200.00076,2515.250.00012.238.233
26/6/2313:42100.00075,507.550.00012.338.233
27/6/2309:31200.00075,2515.050.00012.538.233
27/6/2314:19100.00075,007.500.00012.638.233
28/6/2310:32100.00075,007.500.00012.738.233
28/6/2312:59100.00075,007.500.00012.838.233
28/6/2315:13100.00075,007.500.00012.938.233
29/6/2309:35100.00074,507.450.00013.038.233
30/6/2310:25170.00076,5013.005.00013.208.233
Samtals 1.170.000 88.305.00013.208.233


Reitir hafa nú keypt samtals 1.170.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 19,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 88.305.000 kr. sem samsvarar 16,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 13.208.233 eigin hluti, eða um 1,77% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.