Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 27. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 13.030.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
03.07.2023 15:24 1.000.000 4,33 4.330.000
06.07.2023 14:45 1.000.000 4,33 4.330.000
07.07.2023 11:01 1.000.000 4,37 4.370.000
Samtals   3.000.000   13.030.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 18.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 21.000.000 hluti, eða um 0,55% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 94.525.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is