REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 27


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 27. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 200.000 eigin hluti að kaupverði 16.100.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
5/7/2315:05100.00080,008.000.00013.308.233
6/7/2314:23100.00081,008.100.00013.408.233
Samtals 200.000 16.100.00013.408.233


Reitir hafa nú keypt samtals 1.370.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 22,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 104.405.000 kr. sem samsvarar 19,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 13.408.233 eigin hluti, eða um 1,80% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.