Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – Kaupum samkvæmt áætlun lokið


Í viku 28 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 855.998 eigin hluti að kaupverði 30.589.029 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
11.7.202310:30:3124.87035,80890.346
11.7.202313:30:48360.13035,8012.892.654
13.7.202314:01:19385.00035,7013.744.500
14.7.202310:54:0185.99835,603.061.529
Samtals 855.998 30.589.029
     

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 17.05.2023.

Sjóvá átti 13.594.266 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 14.450.264 eigin hluti eða sem nemur 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið. Sjóvá hefur keypt samtals 7.266.356 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,62% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 249.999.978kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 7.331.378 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð mátti þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is