REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 28


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 28. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 600.000 eigin hluti að kaupverði 49.700.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
12/7/2314:04200.00082,0016.400.00013.608.233
13/7/2310:47200.00082,7516.550.00013.808.233
14/7/2311:13200.00083,7516.750.00014.008.233
Samtals 600.000 49.700.00014.008.233


Reitir hafa nú keypt samtals 1.970.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 32,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 154.105.000 kr. sem samsvarar 29,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 14.008.233 eigin hluti, eða um 1,88% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.