REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 29


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 29. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 930.000 eigin hluti að kaupverði 79.205.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
17/7/2315:01100.00084,258.425.00014.188.233
17/7/2310:3480.00084,256.740.00014.088.233
18/7/2310:17100.00084,258.425.00014.288.233
18/7/2313:5180.00085,006.800.00014.368.233
19/7/2313:43180.00084,5015.210.00014.548.233
20/7/2312:06190.00084,5016.055.00014.738.233
21/7/2315:01100.00087,508.750.00014.838.233
21/7/2315:03100.00088,008.800.00014.938.233
Samtals 930.000 79.205.00014.938.233


Reitir hafa nú keypt samtals 2.900.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 48,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 233.310.000 kr. sem samsvarar 44,4% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 14.938.233 eigin hluti, eða um 2,00% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.