REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 30


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 30. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 958.000 eigin hluti að kaupverði 83.254.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
24/7/2309:53200.00088,0017.600.00015.138.233
25/7/2309:42100.00087,008.700.00015.238.233
25/7/2310:57145.00086,7512.578.75015.383.233
26/7/2309:35100.00086,758.675.00015.483.233
26/7/2310:38158.00086,7513.706.50015.641.233
28/7/2314:48255.00086,2521.993.75015.896.233
Samtals 958.000 83.254.00015.896.233


Reitir hafa nú keypt samtals 3.858.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 64,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 316.564.000 kr. sem samsvarar 60,3% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 15.896.233 eigin hluti, eða um 2,13% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.