REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 31


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 31. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 662.000 eigin hluti að kaupverði 56.404.119 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

TímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
10:02100.00085,758.575.00015.996.233
10:558.17585,00694.87516.004.408
14:04128.82585,7511.046.74416.133.233
10:45150.00085,5012.825.00016.283.233
13:3875.00085,506.412.50016.358.233
09:33100.00085,008.500.00016.458.233
10:43100.00083,508.350.00016.558.233
 662.000 56.404.11916.558.233


Reitir hafa nú keypt samtals 4.520.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 75,3% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 372.968.119 kr. sem samsvarar 71,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 16.558.233 eigin hluti, eða um 2,22% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.