REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 32


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 32. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 730.000 eigin hluti að kaupverði 61.137.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
8/8/2310:48100.00083,758.375.00016.658.233
8/8/2314:50100.00083,758.375.00016.758.233
9/8/2311:20100.00083,758.375.00016.858.233
9/8/2313:36110.00083,759.212.50016.968.233
10/8/2309:32100.00083,758.375.00017.068.233
11/8/2315:14220.00083,7518.425.00017.288.233
Samtals 730.000 61.137.50017.288.233


Reitir hafa nú keypt samtals 5.250.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 87,5% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 434.105.619 kr. sem samsvarar 82,7% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 17.288.233 eigin hluti, eða um 2,32% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 525 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.