REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 33 - Lok endurkaupaáætlunar


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 23. júní 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 26. júní 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 24. júní 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 33. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 750.000 eigin hluti að kaupverði 63.111.500 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
14/8/2314:08218.00083,7518.257.50017.506.233
15/8/2309:49200.00084,0016.800.00017.706.233
16/8/2309:35100.00084,508.450.00017.806.233
16/8/2314:30110.00084,509.295.00017.916.233
17/8/2310:22122.00084,5010.309.00018.038.233
Samtals 750.000 63.111.50018.038.233


Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 24. júní 2023, er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 6.000.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 525 milljónum króna.

Félagið hefur nú keypt samtals 6.000.000 eigin hluti fyrir samtals 497.217.119 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð. Reitir eiga nú samtals 18.038.233 eigin hluti, eða um 2,42% af heildarhlutafé félagsins.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.