Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og leiðrétting á fyrri tilkynningu


Við gerð Q2 uppgjörs Nova Klúbbsins hf. og afstemmingu endurkaupa á uppgjörstímabilinu kom í ljós að tilkynning um endurkaup í viku 22 var röng. Félagið tilkynnti þá um kaup á 3.000.000 eigin hluta þegar framkvæmd voru kaup í þeirri viku á 4.000.000 hluta. Endurkaup í viku 22 voru því í samræmi við eftirfarandi og leiðréttist þetta hér með:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
30.05.2023 09:32 1.000.000 4,56 4.560.000
31.05.2023 10:02 1.000.000 4,56 4.560.000
01.06.2023 10:07 1.000.000 4,56 4.560.000
02.06.2023 10:43 1.000.000 4,55 4.550.000
Samtals   4.000.000   18.230.000


Í 33. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.000.000 eigin hluti að kaupverði 8.500.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
16.08.2023 10:47 1.000.000 4,27 4.270.000
18.08.2023 15:11 1.000.000 4,23 4.230.000
Samtals   2.000.000   8.500.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 35.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 37.000.000 hluti, eða um 0,97% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 163.967.500 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is