SKEL fjárfestingafélag hf.: Endurkaup vika 34


Í 34 viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. alls 511.000 eigin hluti fyrir 6.992.900 kr. eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
22.8.202315:07:51157.00013,82.166.600
23.8.202310:20:16120.00013,61.632.000
24.8.202310:37:53119.000 13,71.630.300
25.8.202311:12:12115.00013,61.564.000
Samtals 511.000 6.992.900

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti SKEL 5.682.275 eigin hluti. SKEL hefur nú keypt samtals 6.193.275 eigin hluti fyrir 83.883.956 kr. sem samsvarar 0,32% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 12. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 18.518.518 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,956% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 250 milljónum króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is