Í 35. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 12.660.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
28.08.2023 | 09:37 | 1.000.000 | 4,23 | 4.230.000 |
29.08.2023 | 09:36 | 1.000.000 | 4,22 | 4.220.000 |
30.08.2023 | 09:35 | 1.000.000 | 4,21 | 4.210.000 |
Samtals | 3.000.000 | 12.660.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.
Nova Klúbburinn átti 40.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 43.000.000 hluti, eða um 1,13% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 189.322.500 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is
![](https://ml-eu.globenewswire.com/media/ZjIxMTBjZjktNTcyMi00ZGQ2LTk4M2MtN2FjM2FlYzZjNWJiLTEyNjAzMjY=/tiny/Nova.png)