SKEL fjárfestingafélag hf.: Endurkaup vika 35


Í 35 viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. alls 1.242.000 eigin hluti fyrir 16.781.450 kr. eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
28.8.202309:54:47127.00013,45      1.708.150
29.8.202310:35:33294.00013,3      3.910.200
31.8.202309:41:33398.00013,7      5.452.600
1.9.202311:03:03250.00013,5      3.375.000
1.9.202312:46:10173.00013,5      2.335.500
Samtals 1.242.000 16.781.450

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti SKEL 6.193.275 eigin hluti. SKEL hefur nú keypt samtals 7.435.275 eigin hluti fyrir 100.665.406 kr. sem samsvarar 0,384% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 12. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 18.518.518 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,956% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 250 milljónum króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is