Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 36 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 4.500.000 eigin hluti að kaupverði 74.315.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
4.9.2023 10:28:56 250.000  16,850 4.212.500
4.9.2023 11:49:55 250.000  16,850 4.212.500
4.9.2023 13:42:55 250.000  16,850 4.212.500
4.9.2023 15:08:18 250.000  16,800 4.200.000
5.9.2023 11:06:13 250.000  16,600 4.150.000
5.9.2023 13:47:42 500.000  16,650 8.325.000
5.9.2023 15:28:16 250.000  16,400 4.100.000
6.9.2023 14:14:55 200.000  16,400 3.280.000
6.9.2023 15:06:11 500.000  16,425 8.212.500
7.9.2023 11:11:24 300.000  16,325 4.897.500
7.9.2023 13:54:54 500.000  16,325 8.162.500
8.9.2023 11:24:15 500.000  16,350 8.175.000
8.9.2023 14:15:02 250.000  16,350 4.087.500
8.9.2023 15:13:15 250.000  16,350 4.087.500
Samtals   4.500.000   74.315.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 23. júní sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 30. mars 2023.

Kvika átti 45.950.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 50.450.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,055% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 864.984.500 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 23. júní 2023 til aðalfundar Kviku á árinu 2024, nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is