SKEL fjárfestingafélag hf.: Endurkaup vika 37 - lok endurkaupa


Í 37 viku 2023 keypti SKEL fjárfestingafélag hf. alls 5.410.243 eigin hluti fyrir 67.750.490 kr. eins og hér segir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
11.9.2023 10:05:46 500.000 12,7  6.350.000
11.9.2023 11:04:02 500.000 12,6  6.300.000
11.9.2023 15:13:56  477.000 12,6  6.010.200
12.9.2023 09:30:40 500.000 12,6  6.300.000
12.9.2023 09:37:38 993.313 12,6  12.515.744
13.9.2023 09:35:57 1.000.000 12,6  12.600.000
13.9.2023 09:56:56 450.000 12,4  5.580.000
13.9.2023 14:38:41 58.000 12,5  725.000
14.9.2023 09:49:20 931.930 12,2  11.369.546
Samtals   5.410.243   67.750.490

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti SKEL 13.108.275 eigin hluti. SKEL hefur nú keypt samtals 18.518.518 eigin hluti fyrir 242.482.196 kr. sem samsvarar 0,956% af hlutafé félagsins. Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun er nú lokið.

Um er að ræða tilkynningu um kaup SKEL á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 12. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 18.518.518 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,956% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 250 milljónum króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is