SKEL fjárfestingafélag hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunnar


Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags hf., sem haldinn var 9. mars 2023, veitti stjórn félagsins heimild, á grundvelli 55. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, að kaupa fyrir hönd félagsins allt að 10% af hlutafé þess. Markmið áætlunarinnar er að lækka útgefið hlutafé félagsins.

Stjórn SKEL hefur á grundvelli samþykktar aðalfundar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar.  Áætlað er að kaupa að hámarki hluti sem samsvara 9,04% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 500 milljónum króna að kaupverði. Félagið á 18.518.518 eigin hluti í dag sem samsvarar 0,956% af hlutafé félagsins.

Endurkaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf SKEL í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast. Endurgjald fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq OMX á Íslandi, hvort sem er hærra.

Gert er ráð fyrir að endurkaup samkvæmt áætluninni hefjist mánudaginn 18. september 2023 og standi fram til 31. desember 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Fossar fjárfestingarbanki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna, óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlun verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Ingi Einarsson, fjármálastjóri SKEL fjárfestingafélags hf., magnus@skel.is