Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 37 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 4.250.000 eigin hluti að kaupverði 69.581.250 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
11.9.2023 10:49:36 250.000 16,425 4.106.250
11.9.2023 13:26:56 250.000 16,700 4.175.000
11.9.2023 14:21:31 250.000 16,450 4.112.500
11.9.2023 15:34:47 250.000 16,500 4.125.000
12.9.2023 10:39:50 250.000 16,500 4.125.000
12.9.2023 13:12:49 250.000 16,500 4.125.000
12.9.2023 14:03:04 250.000 16,500 4.125.000
12.9.2023 15:25:41 250.000 16,450 4.112.500
13.9.2023 11:30:42 500.000 16,250 8.125.000
13.9.2023 14:45:46 250.000 16,300 4.075.000
14.9.2023 11:25:38 500.000 16,250 8.125.000
14.9.2023 15:11:22 500.000 16,250 8.125.000
15.9.2023 15:03:14 500.000 16,250 8.125.000
Samtals   4.250.000   69.581.250

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 23. júní sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 30. mars 2023.

Kvika átti 50.450.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 54.700.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,144% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 934.565.750 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 23. júní 2023 til aðalfundar Kviku á árinu 2024, nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is