Lánasjóður sveitarfélaga - Endurkaup LSS150224


Lánasjóður sveitarfélaga keypti í dag eigin skuldabréf í flokknum LSS150224 að nafnvirði 283 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,597%. Kaupverð bréfanna er 23 milljónir króna.

Heildar endurkaup í flokknum nemur nú alls 7.922 milljónir króna að nafnvirði. Kaupverð bréfanna nemur alls 1.071 milljónir króna.

Endurkaupin eru hluti af virkri stýringu á efnahagsreikningi sjóðsins og er jafnframt ætlað að viðhalda seljanleika bréfanna.


Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949