Íþaka fasteignir ehf.: Árshlutareikningur fyrstu 6 mánuði 2023


Stjórn Íþöku fasteigna ehf. samþykkti á fundi sínum í dag, föstudaginn 22. september 2023, árshlutareikning félagsins fyrir fyrri árshelming 2023. Uppgjör félagsins hefur nú verið birt.

Helstu atriði árshlutareiknings:

  • Heildarafkoma félagsins á tímabilinu var 456,2 m.kr., þar eru stórir þættir rekstrartekjur félagsins sem voru 1.275,9 m.kr. á tímabilinu og matsbreyting fjárfestingaeigna að fjárhæð 739 m.kr.
  • Heildar eignir félagsins námu 33.318,7 m.kr. m.v. 30. júní 2023, en þar af voru fjárfestingareignir 31.751,1 m.kr. og handbært fé 74,4 m.kr. Vaxtaberandi skuldir námu 18.957,2 m.kr. og eigið fé félagsins var 10.259,7 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins í lok tímabilsins er 30,8%.

Árshlutareikningur félagsins er meðfylgjandi og er einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.ithaka.is/fjarmala-og-markadsupplysingar.

Félagið seldi á síðari hluta árs 2021 skuldabréf í flokknum ITHAKA 291128 og á fyrri árshelmingi 2022 í flokknum ITHAKA 070627. Voru skuldabréf í báðum flokkum tekin til viðskipta hjá Nasdaq Iceland hf. þann 19. ágúst 2022.

ÍÞAKA rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja.

ÍÞAKA stefnir að því að vera styrk stoð í íslensku samfélagi með heilnæmt og sveigjanlegt húsnæði sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri, í síma 822-4403 eða í tölvupósti á gunnarvalur@ithaka.is.

Viðhengi



Attachments

Íþaka fasteignir ehf - IFRS árshlutareikningur 30.06.2023