Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 38. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 12.340.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
18.09.2023 11:26 1.000.000 4,12 4.120.000
19.09.2023 10:50 1.000.000 4,11 4.110.000
20.09.2023 09:38 1.000.000 4,11 4.110.000
Samtals   3.000.000   12.340.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 48.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 51.000.000 hluti, eða um 1,34% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 222.422.500 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is