Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 38 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 46.962.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
19.9.2023 14:40:35 500.000 15,900 7.950.000
20.9.2023 10:10:54 250.000 15,800 3.950.000
20.9.2023 11:31:03 250.000 15,800 3.950.000
20.9.2023 14:06:02 250.000 15,800 3.950.000
20.9.2023 15:19:06 250.000 15,725 3.931.250
21.9.2023 10:34:00 250.000 15,550 3.887.500
21.9.2023 13:49:29 250.000 15,500 3.875.000
22.9.2023 10:55:26 250.000 15,350 3.837.500
22.9.2023 13:15:05 250.000 15,525 3.881.250
22.9.2023 14:40:52 250.000 15,500 3.875.000
22.9.2023 15:14:23 190.000 15,500 2.945.000
22.9.2023 15:18:21 60.000 15,500 930.000
Samtals   3.000.000   46.962.500

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 23. júní sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 30. mars 2023.

Kvika átti 54.700.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 57.700.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,207% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 981.528.250 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 23. júní 2023 til aðalfundar Kviku á árinu 2024, nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is