Fly Play hf.: PLAY býður til upplýsingafundar í sumarlok



PLAY býður til upplýsingafundar í sumarlok

Flugfélagið PLAY býður fjárfestum og markaðsaðilum til eftirmiðdagsfundar með stjórnendum félagsins fimmtudaginn 28. september klukkan 15 á Grand Hótel.  Dagskrá hefst klukkan 15:15.

Á fundinum munu lykilstjórnendur veita innsýn í rekstur félagsins. Farið verður yfir þann árangur sem félagið hefur náð nú í lok þriðja sumars í rekstri og mat stjórnenda á fjárhagslegri stöðu auk áætlana næstu missera. Þá mun Einar Örn Ólafsson, stjórnarformaður félagsins, fara yfir sýn stjórnar á stöðu félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Olgeirsson, bo@flyplay.com. Vinsamlegast athugið að ekki verður streymt frá fundinum en fundargögn verða aðgengileg að fundi loknum. 

Viðhengi



Attachments

PLAY býður til upplýsingafundar í sumarlok