Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - endurkaupum lokið


Í viku 39 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 1.502.375 eigin hluti að kaupverði 22.827.994 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
25.9.2023 13:28:10 500.000 15,400 7.700.000
25.9.2023 14:03:39 250.000 15,400 3.850.000
25.9.2023 14:55:32 250.000 15,250 3.812.500
26.9.2023 15:08:23 209.025 14,875 3.109.247
27.9.2023 09:50:25 293.350 14,850 4.356.248
Samtals   1.502.375   22.827.994

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 23. júní sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 30. mars 2023.

Kvika átti 57.450.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og hefur nú keypt samtals 58.952.375 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,233% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 999.999.994 kr., en frá og með viku 29 hefur endurkaupum að kaupverði 4,356,250 verið ofaukið í tilkynningum bankans, eða 250.000 eigin hlutir sem leiðréttist hér með. Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 1.000.000.000 að kaupvirði og er endurkaupum því lokið

Endurkaupaáætlunin var í gildi frá 23. júní 2023 til aðalfundar Kviku á árinu 2024, nema hámarks kaupvirði yrði náð fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög, þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is