Ljósleiðarinn | Samkeppniseftirlitið heimilar kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar


Samkeppniseftirlitið hefur í dag birt samningsaðilum ákvörðun þar sem kaup Ljósleiðarans ehf. á stofnneti Sýnar hf. eru samþykkt án skilyrða. Með þessu er síðasta fyrirvara í samningi félaganna aflétt en áður hafði fyrirvörum um m.a. áreiðanleikakönnun og fjármögnun þessa 3ja milljarða króna kaupsamnings verið aflétt.

Samhliða kaupsamningi var gerður þjónustusamningur milli félaganna til 12 ára um heildsöluaðgang og þjónustu yfir burðar- og aðgangsnet Ljósleiðarans, sem og þjónustu um nettengingar til útlanda.

Einar Þórarinsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans:
„Áfanginn í dag er mikilvægur. Samningur okkar við Sýn eflir Ljósleiðarann og það er mikilvægt að það séu að minnsta kosti tvö öflug fyrirtæki að þjóna fjarskiptafélögunum um landið allt. Það skiptir máli fyrir fjarskiptaöryggi og það skiptir máli fyrir samkeppni um þessa þjónustu sem leikur sífellt stærra hlutverk í atvinnulífi og daglegu lífi fólks.
Þetta er stór áfangi í löngu ferli og nú fögnum við nýjum vinnufélögum sem fylgja rekstri stofnnets Sýnar yfir til okkar Ljósleiðarafólks. Líkt og við tvinnum netið sem við erum að kaupa saman við okkar, hlakka ég til að efla þjónustu okkar enn frekar í samstarfi við þann góða liðsstyrk.

Það er alveg skýrt í mínum huga að framtíð Ljósleiðarans er björt með öflugum landshring fjarskipta og traustum samningum við fjarskiptafyrirtæki sem tryggja okkur tekjur af þessari og öðrum nauðsynlegum fjárfestingum til að Ísland sé vel undir framtíðina búið.“

Tengiliður:
Einar Þórarinsson
framkvæmdastjóri Ljósleiðarans
einar.thorarinsson@ljosleidarinn.is