REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 40


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 40. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 164.500 eigin hluti að kaupverði 13.221.875 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
5/10/2311:0881.50080,256.540.37518.119.733
6/10/2311:2783.00080,506.681.50018.202.733
Samtals 164.500 13.221.87518.202.733


Reitir hafa nú keypt samtals 164.500 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 13.221.875 kr. sem samsvarar 2,7% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 18.202.733 eigin hluti, eða um 2,44% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.