Festi hf.: Lækkun hlutafjár


Á hluthafafundi Festi þann 23. ágúst 2023 var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins. Lækkunin nemur kr. 8.000.000 að nafnverði, eða sem nemur jafn mörgum hlutum. Lækkunin tekur til eigin hluta sem félagið eignaðist með kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem var samþykkt á aðalfundi félagsins árið 2022 á grundvelli 55. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.

Hlutafjárlækkunin hefur nú verið skráð hjá fyrirtækjaskrá Skattsins. Eftir lækkunina er hlutafé félagsins kr. 304.500.000, sem skiptist í jafn marga hluti, hver að nafnverði ein króna og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu. Beiðni hefur verið send á Nasdaq CSD og mun lækkunin verða framkvæmd þar mánudaginn 16. október 2023. Hlutafé félagsins lækkar því úr kr. 312.500.000 í 304.500.000 að nafnverði. Eftir lækkunina á Festi samtals 1.703.286 eigin hluti.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).