Festi hf.: Endurkaup vika 41


Í 41. viku 2023 keypti Festi alls 300.000 eigin hluti fyrir 54.192.500 kr. eins og hér segir:

Vika Dagsetning Tímasetning viðskipta Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð
41 9.okt 14:11:43 70.000 180,25 12.617.500
41 10.okt 10:44:15 30.000 181,5 5.445.000
41 11.okt 13:30:18 70.000 180 12.600.000
41 12.okt 14:53:46 70.000 181 12.670.000
41 13.okt 12:15:46 60.000 181 10.860.000
      300.000   54.192.500


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 9.703.286 hluti eða 3,11% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 2.003.286 eigin hluti fyrir 373.775.645 kr. og á í dag 10.003.286 hluti sem samsvarar 3,20% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,12% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.

Vakin er athygli á tilkynningu félagsins um lækkun hlutafjár sem birtist í fréttakerfi Kauphallar þann 12. október sl. en lækkunin kemur til framkvæmda í dag.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).