REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 41


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 41. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 510.646 eigin hluti að kaupverði 40.898.143 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
9/10/2309:4097.60080,507.856.80018.300.333
10/10/2309:40102.32580,508.237.16318.402.658
11/10/2309:54103.72180,008.297.68018.506.379
12/10/2309:51100.00080,008.000.00018.606.379
13/10/2310:06107.00079,508.506.50018.713.379
Samtals 510.646 40.898.14318.713.379


Reitir hafa nú keypt samtals 675.146 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 12,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 54.120.018 kr. sem samsvarar 11,2% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Reitir eiga nú samtals 18.713.379 eigin hluti, eða um 2,51% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.