Síminn hf. - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2023 verður birt eftir lokun markaðar 24. október 2023


Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2023 þann 24. október næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 25. október 2023 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.

Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á heimasíðu Símans www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: www.siminn.is/fjarfestakynning. Þeir sem vilja bera upp spurningar á meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.