Festi hf.: Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2023 þann 25. október 2023 og afkomufundur þann 26. október


Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. október næstkomandi.

Afkomufundur með markaðsaðilum 26. október kl. 8:30.

Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn fimmtudaginn 26. október 2023 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi og svara spurningum.

Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/cc/uppgjor-3f-2023. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/r/fjarhagsupplysingar.