REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 42


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 42. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 548.000 eigin hluti að kaupverði 42.769.750 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
16/10/2310:13107.00079,508.506.50018.820.379
17/10/2309:35106.00079,008.374.00018.926.379
18/10/2310:12100.00078,257.825.00019.026.379
19/10/2311:15112.00077,008.624.00019.138.379
20/10/2311:27123.00076,759.440.25019.261.379
Samtals 548.000 42.769.75019.261.379


Reitir hafa nú keypt samtals 1.223.146 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 21,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 96.889.768 kr. sem samsvarar 20,0% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Frá lokum annars ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 6.053.146 eigin hluti fyrir 505.801.887 kr.

Reitir eiga nú samtals 19.261.379 eigin hluti, eða um 2,58% af heildarhlutafé félagsins.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.