Festi hf.: Endurkaup vika 43


Í 43. viku 2023 keypti Festi alls 30.000 eigin hluti fyrir 5.460.000 kr. eins og hér segir:

Vika Dagsetning Tímasetning viðskipta Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð
43 25.okt 10:13:09 30.000 182 5.460.000
      30.000   5.460.000


Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Fyrir kaupin þá átti Festi 2.283.286 hluti eða 0,75% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 2.313.286 eigin hluti fyrir 429.880.645 kr. og á í dag 2.313.286 hluti sem samsvarar 0,76% af hlutafé félagsins.  Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 21. júlí 2023 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,15% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 600 milljónir króna að kaupverði.

Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, fjármálastjóri Festi hf. (mki@festi.is).