Kvika banki hf.: Birting níu mánaða uppgjörs fimmtudaginn 2. nóvember


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2023 á stjórnarfundi fimmtudaginn 2. nóvember og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 2. nóvember, kl. 16:15 í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Á fundinum munu Ármann Þorvaldsson forstjóri Kviku og Eiríkur Magnús Jensson fjármálastjóri Kviku fara yfir uppgjör félagsins og helstu þróun á liðnum mánuðum. Einnig mun Ármann fara yfir helstu áherslur og verkefni sem framundan eru hjá Kviku. Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is.

Fjárfestakynningin sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.