REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 43


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 4. október 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 5. október 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 4. október 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 43. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 620.874 eigin hluti að kaupverði 48.028.672 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
23/10/2310:05125.00076,509.562.50019.386.379
24/10/2313:22118.00077,509.145.00019.504.379
25/10/2309:50122.00077,259.424.50019.626.379
26/10/2314:30123.00077,509.532.50019.749.379
27/10/2313:457.87478,00614.17219.757.253
27/10/2314:40125.00078,009.750.00019.882.253
Samtals 620.874 48.028.67219.882.253


Reitir hafa nú keypt samtals 1.844.020 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 32,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 144.918.440 kr. sem samsvarar 29,9% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.600.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 485 milljónir króna.

Frá lokum annars ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 6.674.020 eigin hluti fyrir 553.830.559 kr.

Reitir eiga nú samtals 19.882.253 eigin hluti, eða um 2,67% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 725.755.980.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.