Nova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 44. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 6.000.000 eigin hluti að kaupverði 23.527.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
30.10.2023 14:03 1.500.000 3,920 5.880.000
31.10.2023 09:52 1.500.000 3,920 5.880.000
01.11.2023 09:33 1.500.000 3,920 5.880.000
02.11.2023 09:36 1.500.000 3,925 5.887.500
Samtals   6.000.000   23.527.500

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024.

Nova Klúbburinn átti 71.500.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 77.500.000 hluti, eða um 2,03% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 327.275.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is