REITIR: Kynningarfundur vegna birtingar uppgjörs þriðja fjórðungs 2023


Reitir birta uppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2023 eftir lokun markaða mánudaginn 13. nóvember n.k.

Af því tilefni er fjárfestum og markaðsaðilum boðið til fundar þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið.

Fundurinn verður haldinn kl. 8:30, þriðjudaginn 14. nóvember n.k. á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík en er jafnframt streymt í gegnum netið á slóðinni https://vimeo.com/event/3868756/embed/10b3c6d70b.

Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í 669 4416 eða einar@reitir.is.